Á Pjattrófunum er viðtal við Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur teiknara um bókina þeirra Evu Þengilsdóttur, Gerðu eins og ég, og sitthvað fleira. Lokaorðin ylja hverjum bókaormi um hjartað og hefur vonandi áhrif á pjattrófur landsins: „Kaupið bækur fyrir börnin ykkar frekar en dýr merkjaföt. Ef þau eru vel lesin þá vegnar þeim vonandi vel í lífinu og þá geta þau keypt sér dýru merkjafötin sjálf fyrir háu launin sín!“
Gerðu eins og ég – Hvati og dýrin er fjörug bók sem hvetur börn, og þá fullorðnu sem lesa fyrir þau, til að hreyfa sig eins og dýrin í dýragarðinum. Og það virkar ef marka má fyrstu viðbrögð lesenda. Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor við íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild við Menntavísindasvið HÍ – og fótboltaþjálfari, las bókina fyrir son sinn og lýsir viðbrögðunum með þessum orðum: „Sem þriggja barna móðir hef ég lesið mjög margar bækur fyrir börnin mín og er þessi bók sú eftirminnilegasta, sérstaklega vegna viðbragða þriggja ára sonar míns. Hann var mjög spenntur allan tímann og rak á eftir mér við lesturinn, sem ég man ekki að hafi gerst áður. Um leið og bókin var búin sagði hann: „Aftur, aftur. Mamma, lesaðu núna, lesaðu núna, mamma!“ Og hann hætti ekki fyrr en ég las bókina aftur. Svo hoppaði hann og skoppaði – og ég líka – og við skemmtum okkur konunglega. Ég gef þessari bók mín bestu meðmæli.“