Í viðtali á Miðjunni segir Gunnar Theodór Eggertsson frá bók sinni Köttum til varnar. Dýrin eiga sér ekki marga málsvara og því er tekið eftir þegar risið er upp þeim til verndar. Gunnar bendir á að kettir eru líklega eina húsdýrið sem mönnum tekst aldrei alveg að temja. Í bók hans eru skemmtilegar sögur sem sýna og sanna hvernig kettir lífga upp á lífið og tilveruna. Kettir ekki þrælar fólksins heldur hluti af samfélaginu, segir Gunnar Theodór og það er hverju orði sannara – en í bókinni eru textar hans sjálfs, Haruki Murakami, Jónasar Jónssonar, Páls Halldórssonar og Þorsteins Erlingssonar.