Danska forlagið Gyldendal hefur fest sér réttinn á nýjustu skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur, Karlsvagninum. Bókin nýtur mikillar hylli hér heima og var hún meðal söluhæstu skáldverka fyrir síðustu jól. Kristín Marja á sér þegar dyggan aðdáendahóp í Danmörku en þar hafa komið út bækur hennar Karitas án titils, Óreiða á striga og Mávahlátur. Frændur vorir munu án efa taka Karlsvagninum vel enda er bókin afburðarvel skrifuð og heillandi skáldsaga – þar beinir höfundurinn skáldskaparvopninu að innsta kjarna okkar og hreinlega sálgreinir íslensku þjóðina, svo vitnað sé í gagnrýni um verkið.
Bækur Kristínar Marju hafa nú verið gefnar út í Þýskalandi, Hollandi, Svíþjóð, Frakklandi og Noregi auk Danmerkur og brátt bætist Ítalía í safnið því von er á þarlendri þýðingu á skáldsögunni Mávahlátri sem kemur út á vegum forlagsins Elliot Edizione.