Þýska forlagið Kruger Verlag hefur fest sér réttinn á nýjustu skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur, Karlsvagninum. Bókin hefur notið mikillar hylli hér heima, hún var meðal söluhæstu skáldverka fyrir síðustu jól og er nýkomin út í kilju. Kristín Marja á sér þegar dyggan aðdáendahóp í Þýskalandi og fer hann ört stækkandi að sögn þýska forleggjarans.
Bækur Kristínar Marju hafa nú verið gefnar út í Damörku, Hollandi, Svíþjóð, Frakklandi, Ítalíu og Noregi auk Þýskalands.