Kristin Marja

Karlsvagninn: Glæsilegar viðtökur í Þýskalandi

Skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur, Karlsvagninum, sem kom út 2009 hér heima, er tekið með kostum og kynjum í Þýskalandi þessa dagana. Kristín Marja hefur undanfarið ferðast um Þýskaland, lesið úr Karlsvagninum og rætt við lesendur sína.  Nokkur dagblöð hafa birt umsagnir um þessa upplestra þar sem fram kemur djúp aðdáun á skáldkonunni og verkum hennar:

„Kristín Marja hefur skrifað vel byggða, áhrifamikla sögu um minnið, um félagsmótun konu á Íslandi, um menntun hjartans og um ísinn sem bráðnar.“
Rudolf Habringer, Die Presse

„Í mjúkum og skáldlegum setningum sýnir Kristín Marja hvernig söguhetjan sem segir frá í fyrstu persónu og fjórtán ára dóttir vinkonu hennar fylgjast í laumi hvor með annarri, innilokaðar í sumarbústað mitt í yfirþyrmandi náttúru, og nálgast svo hvor aðra hægt og hægt.“
Bücherwelt, NDR

„Með Karlsvagninum hefur Kristín Marja Baldursdottir skrifað þétta og andríka skáldsögu – og alveg dásamlega.“
Südwest Presse

„Skáldsagan vefur lesandann í mjúka slæðu úr gömlum myndum og sögum. Frásagnarhátturinn er snjall og skýr.“
Frankfurter Neue Presse

„Síðan 1995 hefur hún lýst lífi íslenskra kvenna á útúrdúralausan hátt og frá ólíkum sjónarhornum. Við þetta hefur smám saman orðið til nákvæm mynd af kvenkyns íbúum eyjarinnar norður undir heimskautsbaug, bæði hið ytra og innra, félagslífi þeirra og þróun þess.“
Barbara Fröhlich, Donaukurier

INNskráning

Nýskráning