Kambanskvöld og bók

Í dag kemur úr ævisaga leik- og skáldsagnahöfundarins Guðmundar Kambans, rituð af Sveini Einarssyni. Af því tilefni efnir Rithöfundasamband Íslands til Kambanskvölds í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8, fimmtudagskvöldið 14. nóvember kl. 20. Yfirskrift kvöldsins er „Hver drap Kamban?“ og mun Sveinn þar ræða um ævi og störf þessa merka en umdeilda listamanns og sitja fyrir svörum að erindi loknu. Eftir hlé munu rithöfundarnir Pétur Gunnarsson, Hjörtur Pálsson og Ragnheiður Tryggvadóttir leikkona lesa úr verkum skáldsins.

Guðmundur Kamban var fæddur 1888, fluttist eftir stúdentspróf 1910 til Danmerkur og haslaði sér þar völl sem leikskáld og síðar sem skáldsagnahöfundur. Hann samdi þó flest verk sín jöfnum höndum á Íslandi og í Danmörku, þar sem þau koma oftast samtímis út á íslensku og dönsku, enda dvaldist hann langdvölum í heimalandi sínu, einkum til efnisöflunar fyrir skáldsagnagerðina. Á dögum fyrri heimsstyrjaldarinnar dvaldist hann í tvö ár í Vesturheimi og sækja mörg verka hans efni í þá dvöl. Síðar leitaði hann fótfestu í Bretlandi en hafði ekki erindi sem erfiði, en tæplega fjögurra ára dvöl hans í Þýskalandi á fjórða áratugnum reyndist honum dýrkeypt. Upp úr 1920 var hann nokkuð almennt talinn efnilegasta leikskáld Norðurlanda og á fjórða áratugnum var hann einn fárra Norðurlandamanna  hverra ritverk voru gefin út bæði í Bandaríkjunum og Bretlandi og var orðaður við Nóbelsverðlaunin í sænskum blöðum ásamt Johannes V. Jensen og Gunnari Gunnarssyni. Hann var myrtur á frelsidegi  Dana 5. maí 1945. Síðar kom í ljós að frelsisliðar sem myrtu hann höfðu enga handtökuskipan í höndunum. Danir hafa undanfarin ár  verið að draga upp nýja mynd af því sem gerðist í stríðslok. En mannorð Kambans hefur aldrei verið fyllilega hreinsað, hvorki af dönskum né íslenskum stjórnvöldum.


INNskráning

Nýskráning