Kairos verðlaunin afhent

Andri Snær Magnason rithöfundur veitti einum mikilvægustu mennningarverðlaunum Evrópu, Kairos verðlaununum, viðtöku í Hamborg nú á sunnudaginn. Stofnun kennd við Alfred Toepfer veitir verðlaun þessi árlega og nemur verðlaunaféð 75.000 evrum. Stofnunin hefur styrkt og verðlaunað listamenn í Þýskalandi allt frá árinu 1931. Meðal styrkþega eru t.d. Nóbelsverðlaunahafar á borð við Imre Kertesz og Harold Pinter, myndlistarmennirnir Ólafur Elíasson og David Hockney og danshöfundurinn Pinu Bausch. Með Kairos verðlaununum var fjölmörgum flokkum verðlauna steypt saman í ein stór verðlaun sem eru nú með þeim stærstu sem listamönnum hlotnast.

INNskráning

Nýskráning