Kvöldverðurinn

Kænlega samin og kemur sífellt á óvart

Bókaþátturinn Kiljan hóf göngu sína að nýju í gær og var fyrsta bókin á dagskránni hollenska verðlaunaskáldsagan Kvöldverðurinn eftir Hermann Koch. Rýnendur Kiljunnar voru einróma í dómum sínum og hömpuðu henni umtalsvert. Páll Baldvin sagði hana afar kænlega samda og Kolbrún tók í sama streng og bætti því að höfundur kæmi lesendum sínum sífellt á óvart. Egill kvaðst hafa mest gaman að því hvernig hæðst er að matarsnobbi í bókinni en eins og titilinn gefur til tengist sagan ákaflega afdrifaríkum kvöldverði. Þau Kolla og Páll eiga sér fleiri skoðanasystkini því bókin hefur þegar fengið fantafína dóma á öðrum vettvangi, þar á meðal í Morgunblaðinu og hjá bókabloggaranum Jenný á Eyjunni.



INNskráning

Nýskráning