Jónína Leósdóttir

Jónína Leós sérstakur gestur á Women of the World

Jónína Leósdóttir verður sérstakur gestur á Women of the World kvennaráðstefnunni 8-9. mars næstkomandi.

Á ráðstefnunni ræðir breski rithöfundurinn Kate Mosse (upphafskona Orange Prize bókmenntaverðlaunanna, nú Baileys Women’s Prize for Fiction)  við Jónínu um bók hennar, Við Jóhanna,  í Southbank Centre. Íslendingar ættu að kannast við Kate Mosse en hún kom til Íslands árið 2010 og flutti erindi við afhendingu Fjöruverðlaunanna.

Women of the World (WOW) er árleg kvennahátíð sem hleypt var af stokkunum vorið 2012 undir stjórn Jude Kelly, sem er listrænn stjórnandi Southbank menningarmiðstöðvarinnar. Þetta er því í þriðja sinn sem hátíðin er haldin. WOW fer fram á mörgum stöðum í húsinu, stórum og smáum sölum og berst líka út á lóðina í kringum Southbank Centre sem stendur við Thames-ána, skammt frá The London Eye (útsýnis-hjólinu). Húsið iðar af lífi frá morgni til kvölds, alla helgina. Þarna eru m.a. fyrirlestrar, pallborðsumræður, kynningar, „speed-mentoring“ (hrað-leiðsögn) fyrir ungar konur, tónleikar, listsýningar og ótalmargt fleira.

Á undanförnum árum hafa mörg þúsund konur sótt hátíðina hverju sinni en gestir hátíðarinnar þetta árið eiga von á sérdeilis góðu þar sem að nógu er á af taka í þessari einstöku bók Jónínu.

INNskráning

Nýskráning