Í bókinni Sokkaprjón er að finna 52 uppskriftir að flottum sokkum fyrir alla fjölskylduna. Bókin hefur rokið út frá því að hún kom út síðastliðið vor og hefur verið prentuð á ný til að anna eftirspurn. Uppskriftirnar í bókinni eru af ýmsu tagi og hægt að finna sokka sem hentar hverjum og einum; ungbarnasokka, sparisokka, blúndusokka, hnésokka, tátiljur og herrasokka svo eitthvað sé nefnt.
Í bókinni er að finna þrjár uppskriftir að jólasokkum sem koma öllum í rétta hátíðarskapið. Jólasokkar eru góð jólagjöf og þegar eigandinn er vaxinn upp úr sokkunum getur hann notað þá sem jólaskraut.
Hér er ein uppskrift fyrir prjónafólkið til að spreyta sig á yfir jólin – eða fyrir jólin ef sokkarnir eiga að rata í jólapakkann.
Jólasokkar (8-10 ára)
Prjónar:
nr. 3
Garn:
Kambgarn
Litur:
Rautt (nr. 0917) 2 hnotur
Blátt ( nr. 0942) 1 hnota
Grænt (nr. 0969) 1 hnota
Gult (nr. 9666) 1 hnota
Beinhvítt (nr. 0051) 1 hnota
Prjónfesta:
5×5 cm = 16 L og 20 umf.
FITJIÐ UPP: 64 L á prjóna nr. 3 með rauðu garni (skiptið á 4 prjóna og tengið í hring, 16 L á hverjum prjóni). Prjónið 2 L sl., 2 L br. til skiptis út prjóninn. Alls 6 umf. Byrjið svo á munstrinu (sjá mynd). Endurtakið munstur út umf.
HÆLL: Ömmuhæll (sbr. uppskrift í tengli). Prjónið hælinn með bláa garninu.
Prjónið síðan með rauðu. Þegar fótur mælist 16-17 cm (eða mátuleg lengd – 6 cm) er skipt yfir í blátt garn. Þá er komið að úrtöku fyrir tá.
ÚRTAKA FYRIR TÁ: Ömmutá (sbr. uppskrift í tengli). Prjónið með bláa garninu.
Þegar sokkarnir verða of litlir er kjörið að hekla lykkju í stroffið, snúa band og festa 2 dúska í bandið, festa bandið við stroffið og hengja sokkinn upp sem jólaskraut.