Skemmtidagskráin Jólapopp fer fram á Café Haití, nk. miðvikudagskvöld. Þar verður boðið upp á notalegt nostalgíukast, poppspurningakeppni og primafína tónlist fyrir alla áhugasama poppunnendur. Popppunkts-keppni, Poppkorn og Prinspóló – hvað eru mörg pé í því?
Sagnameistarinn Einar Kárason kemur og kynnir bókina Poppkorn. Í bókinni er haldið á vit minninganna með einstæðum ljósmyndum Sigurgeirs Sigurjónssonar ljósmyndara og minningabrotum Einars frá sjöunda og áttunda áratugnum. Einar kynnir einnig sagnabók sína Mér er skemmt.
Dr. Gunni mætir og heldur sérstaka Popppunkts-spurningakeppni í tilefni af útkomu borðspilsins Enn meiri Popppunktur. Öllum er heimiluð þátttaka og mega vera einn til fjórir þátttakendur í hverju liði. Spurt verður um íslenska og erlenda dægurtónlist og verða sumar spurningarnar byggðar á spurningum úr borðspilinu. Stórglæsilegir vinningar eru í boði.
Hljómsveitin Prinspóló mun síðan sjá til þess að allir haldi sér í þokkalega fínu stuði og spilar ískrandi hress lög af plötunni Jukk, sem Kimi útgáfan gaf út nýlega. Þetta er fyrsta fullvaxna plata Prinspólós, en míníplatan Einn heima kom út í fyrra. Prinspóló er hugarfóstur Svavars Péturs Eysteinssonar og er ógeðslega góð hljómsveit.
Café Haití er staðsett við Gömlu höfnina í Reykjavík (nánar tiltekið Geirsgötu 7b / Verbúð 2) og hefst skemmtidagskráin Jólapopp nokkuð stundvíslega á Popppunkts-spurningakeppninni kl. 21, eins og áður segir miðvikudagskvöldið 15. des. Frábært kaffi og öllari verður í boði á vægu verði fyrir gesti.