Jólamarkaður

Jólamatarmarkaður

Á morgun, laugardag, verður sannkölluð jólamatarstemning á markaði sem Búrið og Beint frá býli standa fyrir. Á markaðnum verða matgæðingarnir Gísli Egill og Inga Elsa með kynningu á bókinni Góður matur – gott líf í takt við árstíðir. Í bókinni er fjallað um hvernig hægt er að nýta það besta úr náttúrunni í matargerð og elda matinn frá grunni í stað þess að kaupa hráefni í dósum.

Jólamatur og huggulegheit á Jólamatarmarkaði, sem verður staðsettur fyrir utan ostabúðina Búrið í Nóatúni 17, og verður opinn kl. 12-16. Nánari upplýsingar um markaðinn er að finna hér.

INNskráning

Nýskráning