Jólabók ársins Jólamatur Nönnu kom út fyrir skömmu og í dag, föstudaginn 25. nóvember, verður útgáfunni fagnað í Eymundsson Austurstræti, kl. 17. Á morgun, laugardag, verður Nanna á ferðinni og kynnir bókina í Eymundsson Smáralind klukkan 14 og Eymundsson Skólavörðustíg klukkan 16. Þar mun hún gefa góð ráð og gefa smakk sem kemur öllum í rétta jólaskapið.
Jólamatur Nönnu er sannkölluð aðventubók sem tilvalið er glugga í, í aðdraganda jólanna. Í bókinni er að finna tillögur að ýmis konar hátíðarmat fyrir jólin og matseðla fyrir hefðbundin jól, ódýr jól, villibráðarjól, hollustujól og fiskijól svo dæmi séu tekin. Í bókinni eru 17 hátíðarmatseðlar með forrétti, aðalrétti, eftirrétti og alls kyns meðlæti en að sjálfsögðu er hægt að blanda saman uppskriftum og búa sér til sinn eigin hátíðarmatseðil. Einnig er að finna tillögur að alls kyns góðgæti til að maula á aðventunni.