Bókin Jólakúlur eftir tískuhönnuðina Arne og Carlos er nýkomin út og af tilefni útgáfunnar koma höfundar til landsins næstu helgi. Þeir munu fara víða, verða hjá Ömmu mús á föstudaginn kl. 15-17 og á Konukvöldi Forlagsins og Smartlands um kvöldið. Á laugardaginn heimsækja þeir A4 í hádeginu og Eymundsson í Kringlunni og Smáralind eftir hádegi.
Sunnudaginn 4. nóvember munu þeir halda kynningu í Norræna húsinu. Segja frá hönnun sinni, hugmyndinni að baki jólakúlna og hvar þeir sækja innblástur. Kynningin byrjar kl. 14, bækur verða seldar á staðnum og Arne & Carlos verða til taks eftir kynninguna til skrafs og ráðagerðar.
Það ætti enginn að missa af þessum stórkostlegu jólakúlusnillingum.