Nú er gósentíð fyrir lestrarhesta því jólabækurnar hreinlega streyma í bókaverslanir um þessar mundir. Glöggir gestir bókabúða hafa án efa rekið nefið í nýjar bækur Jónínu Leósdóttur, Þórunnar Valdimarsdóttur og Árna Þórarinssonar og það hefur vart farið fram hjá nokkrum að út er komin ný bók eftir Arnald Indriðason. Við vekjum sérstaka athygli á nýjum röddum á þessari vertíð, skáldsaga Hugrúnar Hrannar Kristjánsdóttur, Stolnar raddir, er nýkomin út og í dag kemur út bókin Skáldsagan um Jón eftir Ófeig Sigurðsson sem þegar hefur látið að sér kveða á skáldasviðinu. Það hefur Kristín Eiríksdóttir einnig gert en nýtt smásagnasafn hennar, Doris deyr, mun án efa afla henni fjölda aðdáenda.
Bók Einars Kárasonar, Mér er skemmt, er þegar farin að gera stromandi lukku meðal lesenda og sem og skáldsaga Kristínar Steinsdóttur, Ljósa, sem hrærir hjörtu hvers sem hana les. Fylgist vel með Forlagsvefnum þar finnið þið upplýsingar um allra nýjustu bækurnar!