Kristín Eiríksdóttir

Jólabækurnar í kilju

Nú eru jólabækurnar óðum að seljast upp í bandi og koma út í kilju. Fyrst kom Illska, verðlaunabók Eiríks Arnar Norðdahl, sem kláraðist fyrst í mjúkum spjöldum, síðan í bandi og er nú komin í handhæga vasabrotinu. Og í þessari viku eru fjórar nýjar kiljur að bætast við. Sjóræninginn hans Jóns Gnarr kláraðist út af lager um sama leyti og kiljan spýttist út úr vélunum í Odda. Skáld Einar Kárasonar, lokabindið í Sturlungaþríleik hans, Hvítfeld Kristínar Eiríksdóttur og Kantata Kristínar Marju Baldursdóttur voru ekki alveg uppurnar í bandi en gaman verður fyrir bókabéusa að geta fengið þær í kilju.

Fjöruverðlaunabók Auðar Jónsdóttur, Ósjálfrátt, er nú uppseld hjá Forlaginu en vonandi ennþá til í bestu bókabúðum. Hún er væntanleg í kilju alveg á næstunni.

INNskráning

Nýskráning