Íslensku barnabókaverðlaunin – Dómnefnd komin að niðurstöðu

Fimmtíu handrit bárust í samkeppnina um Íslensku barnabókaverðlaunin í ár og hafa dómnefndarmenn legið í lestri síðan skilafresturinn rann út í byrjun febrúar. Nú hefur dómnefnd lokið störfum og valið það handrit sem kemur út undir merkjum verðlaunanna í haust.

Nafn verðlaunahafans verður ekki gert opinbert fyrr en verðlaunin verða veitt í haust en búið er að hafa samband við hann. Aðrir sem sendu handrit í samkeppnina mega nú sækja þau á skrifstofu Forlagsins að Bræðraborgarstíg 7. Handritin verða geymd í fjóra mánuði, til 5. september 2014, en síðan fargað. Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka þakkar öllum þátttökuna og áhugann.

Íslensku barnabókaverðlaunin voru stofnuð í tilefni af sjötugsafmæli rithöfundarins Ármanns Kr. Einarssonar og hafa verið veitt frá árinu 1986. Næst verður auglýst eftir handritum að verðlaunabók ársins 2015  og verður skilafrestur 30. janúar á nýju ári.

INNskráning

Nýskráning