Þorgrímur Þráinsson hlaut í dag Íslensku barnabókaverðlaunin 2010 fyrir bók sína Ertu Guð, afi? Bókin kemur út hjá Vöku-Helgafelli í dag. Þorgrímur er meðal þekktari rithöfunda þjóðarinnar og hafa barna- og unglingabækur hans notið fádæma vinsælda í tvo áratugi. Fyrsta bók Þorgríms, Með fiðring í tánum, kom út árið 1989 og nú telja bækur hans á þriðja tug. Þetta er í annað sinn sem Þorgrími hlotnast þessi verðlaun en þau hlaut hann árið 1997 fyrir söguna Margt býr í myrkrinu. Auk Íslensku barnabókaverðlaunanna hefur Þorgrímur hlotið Barna- og unglingabókaverðlaun Skólamálaráðs Reykjavíkurborgar og Bókaverðlaun barnanna fyrir síðustu bók sína Núll, núll 9. Von er á framhaldi þeirrar sögu nú fyrir jólin.
Íslensku barnabókaverðlaunin hafa fest sig vel í sessi síðan þau voru veitt fyrst 1986 og margir af okkar dáðustu barnabókahöfundum hafa unnið til þeirra. Af þeim má nefna Herdísi Egilsdóttur, Iðunni Steinsdóttur, Brynhildi Þórarinsdóttur og Friðrik Erlingsson. Þátttakan í ár var afar góð og bárust á fjórða tug handrita í keppnina. Dómnefndin var skipuð fulltrúum frá Forlaginu, IBBY á Íslandi, Barnavinafélaginu Sumargjöf og erfingjum rithöfundarins Ármanns Kr. Einarssonar, sem stofnaði til verðlaunanna, auk tveggja nemenda úr Laugalækjarskóla. Verðlaunaféð nemur 500.000 krónum.
Samkeppnin um Íslensku barnabókaverðlaunin er haldin á hverju ári. Skilafrestur á handritum sem keppa um verðlaunin 2011 er 1. febrúar næstkomandi.