Tvær íslenskar bækur eru á þýska metsölulistanum, þ.e. heildarlista Þýskalands yfir sölu á bókum.
Svörtuloft Arnalds Indriðasonar vermir 29. sæti listans og nýjasta bók Hallgríms Helgasonar, Konan við 1000°, er í 36. sæti. Þetta er önnur vikan sem bók Hallgríms er á listanum og er hún á uppleið. Bókin kom út fyrir um það bil mánuði síðan í Þýskalandi og hefur Hallgrímur verið á ferð og flugi um landið að lesa upp úr bókinni síðustu vikurnar.
Konan við 1000° verður dreift á Íslandi á þriðjudaginn kemur og ekki er við öðru að búast en að Íslendingar taki bókinni jafn vel og Þjóðverjar.