Prjónapeysur

Íslensk ull í Bandaríkjunum

Nýlega var gengið frá sölu á bókinni Prjónað úr íslenskri ull til bandaríska bókaforlagsins St. Martins Press í New York en alls sóttust fjögur bandarísk bókaforlög eftir útgáfurétti á bókinni.

St. Martins Press tilheyrir Macmillan útgáfurisanum sem á og rekur bókaútgáfu í um 70 löndum. Bókin, sem er væntanleg í janúar 2013, verður prentuð í upp undir 10 þúsund eintökum.

Í Prjónað úr íslenskri ull eru 65 uppskriftir að flíkum úr íslenskri ull en einnig eru greinar um sögu prjóns og sögu ullariðnaðar á Íslandi. Bókin fæst á íslensku og ensku.

INNskráning

Nýskráning