Við höfum lengi vitað að hér koma út fleiri bækur miðað við höfðatölu en nokkurs staðar í heiminum en það er ánægjulegt að sjá í nýrri rannsókn Ágústar Einarssonar á hagrænum áhrifum bókaútgáfu að Íslendingar lesa líka mikið: 93% Íslendinga lesa meira en eina bók ári og er það hlutfall hvergi hærra, og helmingur Íslendinga les meira en 8 bækur á ári og aðeins Svíar og Finnar lesa meira. Frá þessu segir í frétt á ruv.is.
Íslendingar virðast líka sækjast meira eftir menningu en aðrar Norðurlandaþjóðir og hér starfa hlutfallslega fleiri við menningarmál en í öðrum löndum Evrópu. 3,2% vinnandi fólks hafa lífsviðurværi sitt af menningu hér á landi og er það hæsta hlutfall af 20 Evrópuríkjum sem borin eru saman í rannsókninni.
Menningarvitarnir á Forlaginu eru stoltir af þessu og heita á íslenska bókaorma að halda áfram að vera svona duglegir að kaupa og lesa bækur. Þær eru fóður fyrir heilann!