Danski rithöfundurinn Hanne-Vibeke Holst, sem er hér á landi um þessar mundir að kynna skáldsögu sína Iðrun og fyllti Norræna húsið af aðdáendum sínum í gærkvöld, hefur komið til Íslands áður; til dæmis var hún gestur á Bókmenntahátíð í Reykjavík haustið 2005 og árið 1991 var hún gestur á Dönskum dögum í Bókabúð Máls og menningar. Þá var hún rétt rúmlega þrítug en það fór vel á með henni og Thor Vilhjálmssyni eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Edda Ragnarsdóttir tók myndina.