Það er skammt stórra högga í milli hjá rithöfundinum Auði Jónsdóttur. Nýverið birti danska blaðið Politiken dóm um bók hennar Tryggðarpant, og fór þar fremur hrjúfum höndum um innihaldið. En um helgina birtist síðan feikistórt viðtal við Auði í bókakálfi blaðsins þar sem bókinni er fagnað mjög og hrósað í hvívetna. Í viðtalinu ræðir blaðamaður Politiken vítt og breitt um tilurð bókarinnar og veru Auðar í Danmörku en kemur einnig inn á raunveruleika íslenskra stjórnmála um þessar mundir. Afar forvitnileg lesning með morgunkaffinu.