Indversk, eftirminnileg, æði

Sumarfrí er hugarástand! Þú getur bókað sól í sálinni þinni við að lesa nýjustu bók Vikasar Swarup um Ærlega lærlinginn. Bók Vikasar Viltu vinna milljarð? fór sigurför um heiminn og aðdáendur hans hafa beðið spenntir eftir nýrri sögu. Ærlegi lærlingurinn er saga sem svíkur engan – hlýleg, spennandi og litrík.

Í bókum Swarups má finna kraftmikla blöndu af ævintýraveröld Bollywood-myndanna, aldagamalli inverskri speki og raunsæi sem engu hlífir.

Skítt með spánna, þú getur lesið þessa í hvaða veðri sem er.

INNskráning

Nýskráning