Bollakökur Rikku

Ilmandi Fröken Reykjavík?

Í tilefni matar- og uppskeruhátíðarinnar Full borg matar er efnt til  samkeppni um bestu og fallegustu bollaköku landsins. Sú bollakaka sem verður hlutskörpust að mati dómnefndar hlýtur titilinn „Fröken Reykjavík“ og ber hann í heilt ár þar til næsta keppni fer fram. Sérlegur dómari í þessari keppni er hinn fjölhæfi og frábæri listakokkur Rikka en hún gaf einmitt út hina geysivinsælu bók Bollakökur fyrr í sumar. Við hvetjum alla sem ofnhönskum geta valdið til þess að spreyta sig í þessari skemmtilegu keppni, innblástur og góðar hugmyndir má að sönnu finna í bókinni hennar Rikku. Sjá nánar hér.




INNskráning

Nýskráning