Eiríkur Örn

Illska verðlaunuð

Íslensku bókmenntaverðlaunin voru veitt á Bessastöðum í gær við hátíðlega athöfn. Í flokki fagurbókmennta hlaut hnossið skáldsagan Illska eftir Eirík Örn Norðdahl sem hefur fengið einstaklega góðar viðtökur gagnrýnenda og almennra lesenda á öllum aldri. Ræða Eiríks Arnar við þetta tækifæri vakti líka gleði gesta og hún fylgir hér með góðfúslegu leyfi hans:

Kæru gestir.

Í fyrsta lagi er mér þakklæti í huga. Ég er þakklátur þeim sem sýndu mér stuðning á meðan ég skrifaði þessa bók – fjölskyldu og vinum sem hafa veitt mér hlutdeild í hugsunum sínum, foreldrum mínum, systkinum, fyrrum eiginkonu, syni mínum, ritstjóra mínum, Silju Aðalsteinsdóttur, og vinum mínum öllum – en helst þeim Hauki Má Helgasyni og Steinari Braga, sem lásu bókina yfir í handriti, fyrir utan að leiðbeina mér í lífinu og leiða mig í gegnum hugmyndaveruleikann. Ég er einnig þakklátur fyrir bækurnar sem ég hef lesið – eiginlega frá því að ég fæddist – bæði þær sem ég naut og þær sem ég þoldi ekki, þær sem uppljómuðu mig og þær sem sýndu mér hvers lags hugsun ég vildi forðast. Ég held að án bókanna og samræðanna hefði Illska orðið annað verk og ég orðið annar maður – hugsanlega í þessari röð.

Í öðru lagi er ég einfaldlega stoltur af sjálfum mér. Ég vona að mér leyfist slík drýldni. Mér fannst afar erfitt að skrifa þessa bók og ég var oft að því kominn að hætta við hana – og gerði það meira að segja tvisvar. Mér fannst oft einsog þetta væri allt saman ómögulegt – í fyrsta lagi væri þetta einfaldlega ekki saga sem hægt væri að segja á þann hátt sem ég vildi segja hana og í annað stað ætti ég ekkert með að reyna að skrifa hana; menntlaus maður, alls ótengdur söguefnum sínum, hvorki lithái, kona, nýnasisti eða háskólaborgari. Og þá gafst ég upp. Og svo hætti ég við að gefast upp, fylltist eldmóði og þraukaði til skiptis. Stundum finnst mér einsog ég hafi skrifað þessa bók einfaldlega með því að stara nógu fast á tölvuskjáinn og bölva því nógu hátt að ekkert skuli miða áfram. Ég þykist góður að hafa komist á leiðarenda.

Í þriðja lagi er ég þakklátur – einsog í fyrsta lagi – en í öðrum skilningi en þá. Í þriðja lagi er ég þá þakklátur fyrir viðtökurnar. Ég er þakklátur fyrir glögga lesendur, sterkefnaða bókakaupendur, velviljaða gagnrýnendur, ýtna bóksala, skarpskyggna útgefendur sem höfðu trú á bókinni og yndislegustu verðlaunanefnd sem sólin hefur skinið á frá upphafi veraldar, það best ég veit og hef tekið eftir. Það hefði verið skelfilegt fyrir mig ef þetta hefði allt farið einhvern veginn allt öðruvísi og alls ekki jafn vel – sem það getur gert, góðar bækur skrifaðar af metnaði gleymast og hverfa á hverjum einasta degi, um það er ég sannfærður. En það fór ekki illa í þetta skiptið, það fór vel.

Í fjórða lagi vona ég að þetta verði til þess að vekja athygli á umfjöllunarefnum bókarinnar – því þótt hún hafi ekki beinlínis pólitískt agenda þá reynir hún að varpa einhverju ljósi á hvað það þýðir fyrir manneskju að vera svipt samfélagi sínu fyrir sakir uppruna síns, orða sinna, gjörða, skoðana og orð og gjörðir annarra. Hvað það þýðir að beita ofbeldi og hvað það þýðir að vera beittur ofbeldi – hvað það þýðir að lifa með fortíðina á bakinu – hvað það þýðir að elska og hvað það þýðir að elska ekki.

Í fimmta lagi er ég þakklátur – einsog í fyrsta lagi og þriðja lagi – en nú í enn öðrum skilningi. Í fimmta lagi er ég þakklátur fyrir peningana. Þeir koma sér vægast sagt vel – þótt þeir fari reyndar beint aftur í ríkissjóð, með vöxtum, vaxtavöxtum og dráttarvöxtum, enda dýrt spaug að vera listamaður á stopulum launum og gleyma að borga skattinn sinn. En það er sama, ég losna þá við harðsvíruðustu innheimtumennina af bakinu í bili, og fyrir það get ég ekki verið annað en þakklátur.

Í sjötta og síðasta lagi velti ég því auðvitað fyrir mér hvernig þetta eigi eftir að fara með mig, þetta viðkvæma blóm sem ég er. Á yfirborðinu er ég auðvitað mjög sívílíseraður en innst inni býr hégómagjarn athyglissjúklingur sem er líklegur til þess að láta þetta stíga sér til höfuðs. Kannski næsta stríð verði háð um þetta, að breytast ekki í óþolandi gerpi. Takk fyrir mig.

Í flokki fræðibóka og bóka almenns efnis hlaut verðlaunin Gunnar F. Guðmundsson fyrir bók sína Pater Jón Sveinsson – Nonni sem Opna gefur út.,

INNskráning

Nýskráning