Skáldsaga Eiríks Arnar Norðdahl tekur flugið!
Réttindastofa Forlagsins hefur gengið frá samningi um sölu á skáldsögunni Illsku eftir Eirík Örn Norðdahl til stórforlagsins Klett-Cotta í Þýskalandi en mörg þýsk forlög lýstu yfir áhuga á að gefa verkið út.
Skáldsagan Illska kom út hjá Máli og menningu síðastliðið haust og voru umsagnir gagnrýnenda á eina lund: Þröstur Helgason sagði í Kiljunni að spurning væri hvort hann ætti eftir að lesa betri skáldsögu í haust og Björn Þór Vilhjálmsson sagði í Víðsjá: „Með verkum sínum hefur Eiríkur þegar skipað sér í röð framsæknustu og djörfustu höfunda sinnar kynslóðar.“
Illska er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2012 og bóksalar kusu hana bestu skáldsögu ársins. Útgefandi Klett-Cotta, Michael Zöllner, er að vonum kampakátur með hnossið og segir Illsku magnþrungið verk sem þeir hafi þegar í stað tekið ástfóstri við.
Illska er bók um helförina og bók um ástina, um Ísland og Litháen, um Agnesi sem glatar sjálfri sér á milli þess sem Jón Baldvin viðurkennir sjálfstæði Eystrasaltslandanna og litháískir glæpamenn taka að starfa í Reykjavík, um Agnesi sem veit ekki hvort hún heldur með b-heimsmeisturunum í handbolta eða Bogdan Kowalczyk, um Agnesi sem elskar Ómar sem elskar Agnesi sem elskar Arnór.