Á fimmtudaginn mun Borgarleikhúsið frumsýna Illsku, leikgerð eftir skáldsögu Eiríks Arnar Norðdal sem olli miklu fjaðrafoki þegar hún kom út árið 2012. Hún hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin, bóksalar völdu hana bestu skáldsöguna það árið og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlanda 2013.
Bókin fjallar um helförina, um ástina, um Ísland og um Litháen. Um Agnesi sem elskar Ómar sem elskar Agnesi sem elskar Arnór. Sagan í bókinni nær aftur til 1941 í Litháen þar sem annar afi Agnesar drepur hinn, sagan fer líka til Ísafjarðar þar sem menntamaðurinn og nýnasistinn Arnór á rætur sínar að rekja.
Höfundar leikverksins eru Óskabörn ógæfunnar en það er sjálfstætt starfandi leikhópur og leikstjóri er Vignir Rafn Valþórsson. Leikarar eru Hannes Óli Ágústsson, Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson.
Hér má finna frekari upplýsingar um sýninguna og versla miða.
Við getum ekki beðið. Góða skemmtun!