Í haust gaf Forlagið út bókina Í nándinni – innlifur og umhyggja eftir sálfræðinginn Guðbrand Árna Ísberg. Í verkinu útskýrir Guðbrandur Árni á aðgengilegan, frumlegan og skemmtilegan hátt hvernig bæta má samskipti og sambönd með því að rækta hæfni sína til innlifunar og leikni í að vera samvistum við aðra.
Bókin hefur hlotið frábæra dóma í hvívetna og komist inn á metsölulista. Í rýni sinni fyrir Sáfræðiritið segir Hörður Þorgilsson: „Það þarf metnað til að semja og birta í bók heilsteypta sýn á manninn og hvernig sú sýn leiðbeinir í lífi og starfi. Þótt undirritaður hafi starfað sem sálfræðingur í nærri þrjátíu ár skil ég margt betur en áður. Fyrir hinn almenna lesanda er margt að finna í leit að betri líðan. Ég óska Guðbrandi Árna Ísberg til hamingju með mjög góða bók.“ En það eru ekki aðeins kollegar Guðbrands sem eru ánægðir með bókina en samhliða því að vera afar fræðandi þykir hún afar vel skrifuð. Páll Baldvin Baldvinsson komst svo að orði: „Þetta er vel skrifuð og áhugaverð bók um mikilvægt efni. Hlý og mannúðleg.“
Þeir sem hafa áhuga á okkur mönnunum og mannlegum samskiptum ættu því ekki að láta þessa frábæru bók fram hjá sér fara.