Birgitta Sif

Í lagi að vera öðruvísi

Bókin Ólíver eftir Birgittu Sif kom út á íslensku fyrir skömmu en hún kom fyrst út á ensku í Bretlandi. Bókin hefur fengið afbragðs dóma þar í landi. Á einni vefsíðunni er sagt að Ólíver sé stórfengleg myndabók um vináttu, ímyndunarafl, sjálfskoðun og það sem er mikilvægast – að það sé í lagi að vera öðruvísi en aðrir af því að þú ert aldrei sá eini.

Birgitta Sif myndskreytir söguna sjálf og er myndunum sérstaklega hrósað. „Sagan lifnar við vegna mynda Birgittu Sifjar og lesendur geta ekki annað en fallið fyrir bókinni. … Ólíver mun án nokkurs vafa snerta hjarta þitt og ég mun pottþétt næla mér í allt sem kemur frá þessum hæfileikaríka rithöfundi/myndskreyti í framtíðinni.“


Hér má sjá dóminn allan í heild sinni og hér má sjá skemmtilegt viðtal við höfundinn, Birgitti Sif.


INNskráning

Nýskráning