Í föðurleit

Rithöfundurinn Hisham Matar kom fyrir efri deild breska þingsins í vikunni og hvatti bresk stjórnvöld til þess að krefja Líbíumenn um upplýsingar um andspyrnumenn sem handteknir voru án skýringa í kjölfar hertra aðgerða einræðisherrans Gaddafis í landinu árið 1990. Faðir Hishams, Jaballa Matar, er einn þeirra en til hans hefur ekkert spurst frá árinu 1995. Hisham Matar er höfundur bókarinnar Í landi karlmanna sem kom út hjá JPV árið 2007 en bók sú sækir að hluta í þá reynslu höfundarins að alast upp í samfélagi tortryggni og ótta. Bókin hlaut frábærar viðtökur um allan heima enda sögð bæði „meistaralega skrifuð“ og „lamandi falleg“. Nýlega fékk Hisham Matar fregnir af því að faðir hans gæti enn verið á lífi og í kjölfarið skrifaði hann eftirtektarverða grein í breska blaðið The Guardian. Áður hafði Hisham unnið að nýrri skáldsögu sem fjallar um mann sem missir föður sinn en útgáfu þeirrar bókar hefur nú verið frestað fram í mars.

INNskráning

Nýskráning