Kortabók

Hvert er förinni heitið?

Ekki ana af stað með eldgamalt kort!

Í Kortadeildinni okkar í Bókabúð Forlagsins á Fiskislóð er landsins besta úrval landakorta. Hvort sem þú ert að fara í göngu um Hornstrandir, í sund á Siglufirði eða að leita að bestu leiðinni austur og yfir um þá erum við með kortin fyrir þig.

Og það sem mest er um vert, kortin okkar eru uppfærð á hverju ári svo þú lendir ekki úti í skurði … eða móa með tóman tank og maga.

Vertu undirbúin/n með nýjustu upplýsingar um vegi og þjónustuaðila.
Þú getur treyst kortunum frá Máli & menningu.

Á Fiskislóðinni finnur þú kort í ýmsum mælikvörðum, slétt, samanbrotin, plöstuð, upphleypt, innrömmuð, kortaseríu og kortabækur. Svo er líka heitt á könnunni.

Verið velkomin!

Opið alla virka daga kl. 10–18 og laugardaga kl. 11–15

INNskráning

Nýskráning