Rithöfundurinn og bloggarinn Ágúst Borgþór fagnar nýju hefti TMM á vefstað sínum á DV.is og hrósar forvitnilegu efni þess. Hann skrifar meðal annars: „Það er eitt sem gerir Ólaf Ragnar Grímsson alveg einstakan: Hann er líklega eini fyrrverandi þjóðhöfðingi heims sem er ennþá í embætti. Þessa hugmynd má raunar lesa á milli línanna í mjög samtímalegum ljóðabálki eftir Anton Helga Jónsson í nýjasta tímariti TMM. Þar er altént orðalagið „forsetinn fyrrverandi“ á einum stað. Mikið af forvitnilegu efni í heftinu, m.a. gerir Hallgrímur Helgason grein fyrir Baugspennastimpli sínum, Guðni Elísson dregur þá ályktun af framtíðarskýrslu Viðskiptaráðs frá 2006 að hér hefði þjóðfélaginu öllu verið rústað ef bankarnir hefðu ekki hrunið haustið 2008; árið 2015 hefði m.a. verið búið að rústa menntakerfinu og tæma lífeyrissjóðina. Ég á að hluta ólesið Krataávarpið eftir Stefán Snævarr en þar ber hann meðal annars saman árangur af annars vegar óheftri frjálshyggju og hins vegar blönduðu hagkerfi víða um heim.“
Hann klikkir síðan út með því að hvetja landslýð til að kaupa sér eintak því það sé hverrar krónu virði.