Í dag, fimmtudag, kl. 12 mun Guðrún Eva Mínervudóttir ræða um tilurð bókar sinnar Allt með kossi vekur, í fyrirlestrarröðinni Hvernig verður bók til? Fyrirlesturinn verður í stofu 105 á Háskólatorgi.
Á fyrirlestrinum verður skyggnst á bak við bókina, hlustað á höfundinn segja hvernig sagan varð til, hvaða aðferðir hann notaði við sköpunina og fleira í þeim dúr.
Guðrún Eva hlaut fyrir skömmu Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir bókina.