Þórður Snær og Magnús Halldórsson

Hverjir eignast Ísland?

Bókinni Ísland ehf. – Auðmenn og áhrif eftir hrun eftir þá Magnús Halldórsson og Þórð Snæ Júlíusson var dreift í verslanir nú í vikunni. Af því tilefni verður efnt til útgáfugleði í Bókabúð Forlagsins að Fiskislóð 39 og hefst hún kl. 17. Léttar veitingar verða á boðstólum, bókin á sérstöku útgáfutilboði og höfundar ræða málin við gesti. Allir eru velkomnir og um að gera að kynna sér þessa áleitnu sögu áður en tekið er til við menninguna á menningarnótt.

Atburðarásinni í aðdraganda Hrunsins hefur verið gerð góð skil á ýmsum vettvangi. Minna hefur farið fyrir greiningu á eftirleiknum enda flókin refskák og ekki alltaf ljóst hver færir peðin, hvert og hvers vegna. Blaðamennirnir Magnús og Þórður Snær hafa á undanförnum árum vakið athygli (og ótta og alloft skapraun í vissum herbúðum) fyrir glöggskyggni og snörp skrif um íslenskt viðskiptalíf. Í Íslandi ehf. flétta þeir saman ótal þráðum og veita innsýn í atburði á líðandi stundu sem snerta alla þjóðina.

Hér er sett fram sagan á bak við söguna, blaðafyrirsagnirnar, flétturnar og vafningana, og leitt í ljós hverjir eru um það bil að sölsa undir sig auðlegð landsins – og munu, ef fer sem horfir, brátt standa uppi sem eigendur Íslands. Þetta er mikilvæg saga sem landsmönnum ber að skoða og þekkja ef þeir ætla sér ekki að endurtaka nýleg mistök strax aftur.

INNskráning

Nýskráning