Gerðu eins og ég

Hvati hvolpur í Stundinni okkar

Fyrsti þátturinn um Hvata hvolp var sýndur í Stundinni okkar á sunnudaginn. Þættirnir eru unnir upp úr bókinni Gerðu eins og ég – Hvati og dýrin sem kom út fyrir síðustu jól. Eins og bókin hvetja þættirnir krakka til að nota líkamann – standa á öðrum fæti eins og hani, velta sér eins og hestur, ganga út á hlið eins og krabbi og margt margt fleira.

Sagan um Hvata hvolp er fyrsta barnabók Evu Þengilsdóttur og  Bergrúnar Írisar Sævarsdóttur og hlaut hún bestu meðmæli foreldra og fagfólks þegar hún kom út, enda ekki vanþörf á að stuðla að markvissri og skemmtilegri hreyfingu barna á leikskólaaldri. Eggert Gunnarsson hjá sjónvarpinu sér um dagskrárgerð og Margét Sverrisdóttir les. Léttar æfingar fléttast inn í þættina og eru þær unnar í samráði við Æfingastöð Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, en stöðin sinnir umfangsmestu sjúkra- og iðjuþjálfun barna á landinu.

Tvær ungar dömur léku í þættinum sem sýndur var á sunnudaginn og heita þær Stefanía Diljá Edilonsdóttir og Ragnheiður Sumarliðadóttir. Þáttinn má sjá í heild sinni hér.

INNskráning

Nýskráning