Brothætt

Hvað ef hún hefði aldrei fæðst?

Metsöluhöfundurinn Jodi Picoult er þekkt fyrir áleitnar skáldsögur. Í nýjustu bók sinni, Brothætt, skrifar hún um móður ungrar stúlku sem haldin er ólæknandi sjúkdómi – bein hennar brotna við minnsta hnjask. Sjúkdómurinn hefur áhrif á hvert smáatriði daglegs lífs fjölskyldunnar en því taka foreldrarnir ævinlega af æðruleysi. Þar til röð tilviljana þvingar þau til að svara stærstu spurningu sem þau hafa nokkru sinni staðið frammi fyrir: Hvað ef þau hefðu vitað um sjúkdóm dóttur sinnar fyrr? Hvað ef hún hefði aldrei fæðst?

Brothætt er komin út í kilju í þýðingu Ásdísar Guðnadóttur.


INNskráning

Nýskráning