Bókin Hungurleikarnir er sú fyrsta í þriggja bóka seríu. Hún kom út á íslensku fyrir jólin og er nú í fyrsta sæti á metsölulista Eymundsson yfir barna- og unglingabækur. Bókin er þó alls ekki bara fyrir börn og unglinga því ævintýralegur söguþráðurinn, kraumandi spenna og óvæntar fléttur heltaka fullorðna jafnt sem börn og er þetta ein af þeim bókum sem ekki er hægt að leggja frá sér!
Vinsældir Hungurleikanna hafa verið gífurlegar og óhætt er að segja að algjört Hungurleikja-æði hafi gripið um sig vestan hafs. Í Bandaríkjunum hafa allar bækurnar þrjár verið í toppsætum metsölulista næstum samfleytt frá því þær komu út, en fyrsta bókin kom þar út árið 2008 og sú þriðja árið 2010. Síðan hafa þær verið endurprentaðar í kiljum og þannig hafa þessar bækur náð að vera metsölubækur í tæp fjögur ár. Núna síðast í janúar röðuðu bækurnar þrjár sér í topp þrjú sætin á metsölulista USA TODAY. Vinsældir bókanna hafa einnig náð út fyrir bandarísku landsteinana og hefur útgáfurétturinn verið seldur til 45 landa.
Núna í mars mun verða frumsýnd kvikmynd byggð á fyrstu bókinni og er vægast sagt mikil eftirvænting hjá aðdáendum bókanna.
Hér má sjá sýnishorn úr myndinni.