Hungurleikarnir verðlaunaðir

Magnea J. Matthíasdóttir hlaut Barnabókaverðlaun skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur í dag er þau voru afhent í 40. sinn fyrir þýðingu sína á Hungurleikunum eftir Suzanne Collins. Í umsögn dómnefndar um þýðinguna segir m.a.: „Þýðing Magneu J. Matthíasdóttur er fumlaus og laus við tilgerð og talar beint til krefjandi lesendahóps. Í sögunni hverfur lesandinn  inn í heim sem er fjarlægur en samt svo nálægur, þökk sé vel heppnaðri þýðingu Magneu.“
Jón Gnarr borgarstjóri og Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs,  afhentu barnabókaverðlaunin síðdegis við hátíðlega athöfn í Höfða að viðstöddum fjölmörgum gestum. Borgarstjóri sagði m.a. í ávarpi sínu að fátt væri jafn dýrmætt og þroskandi fyrir börn og góðar sögur og fólk sem segir þeim sögur. „Markviss lestur fyrir börn og með börnum er þeim veganesti sem kennir þeim gildi þess að vera manneskja og gefa af sér – gildi þess að halda sagnakeðjunni lifandi.“

INNskráning

Nýskráning