Metsölubókin Hungurleikarnir er nú loksins komin í kilju og ekki mátti seinna vænna þar sem innbundna útgáfan seldist upp í vikunni. Jafnt ungir sem aldnir rífa þessa hörkuspennandi bók í sig þessa dagana og er sannkallað Hungurleikjaæði ríkjandi á landinu í dag.
Þeir sem vilja næla sér í eintak af bókinni fyrir páska ættu ekki að lenda í vandræðum. Eins og fyrr segir fer kiljan í verslanir í dag og einnig er hægt að næla sér í rafbókareintak hér á síðunni.
Hefjum leika!