Nýlega stóð Guðrún S. Magnúsdóttir, höfundur hinna vinsælu handavinnubóka Húfuprjóns og Sokkaprjóns, fyrir uppboði á húfum sínum til styrktar Neistanum – styrktarfélagi hjartveikra barna.
Alls söfnuðust 150.000 kr. á uppboðinu og þann 16. nóvember sl. tók fulltrúi Neistans, Guðrún Bergmann Franzdóttir við gjöfinni. Hér er Guðrún ásamt barnabarni sínu, Jóni Kára Konráðssyni 6 ára, sem er hjartveikur en hann hjálpaði ömmu sinni við afhendinguna.