Grænmetishjarta

Hristu af þér sumarslenið

Eru sumartimburmennirnir farnir að banka upp á? Fékkstu nóg af grillsósum og sykurpúðum í síðustu grillveislu?

Eftir mestu sukkhelgi sumarsins er kjörið að huga svolítið að heilsunni, dekra við líkamann og losna við slenið. Í bókinni Detox eru gefnar upp 14 leiðir til að hreinsa líkamann og styrkja varnir hans. Þarftu að auka orku, grenna þig, minnka streitu, hætta að reykja eða hætta sykuráti? Þú finnur réttu leiðina að markmiðinu í þessari bók.

Í Safar og þeytingar eru yfir 200 uppskriftir að meinhollum drykkjum sem fylla líkamann af næringarefnum og orku. Grænmetissafar, suðrænar sveiflur, morgunverður í glasi, orkusprengjur – þú finnur drykk sem hentar við hvert tilefni.

Þeir sem vilja aðhald og eftirfylgni í heilsueflingunni geta fylgt ráðum Lene Hansson í bók hennar Léttara og betra líf. Þar gefur Lene upp 8 vikna heilsuáætlun sem auðvelt er að fylgja, með uppskriftum, fróðleiksmolum og hressandi uppörvunarorðum.

Hristu af þér slenið og eigðu heilsubætandi ágústmánuð!

INNskráning

Nýskráning