Hrafninn, söguleg skáldsaga Vilborgar Davíðsdóttur, hefur verið valin bók mánaðarins á þýska vefnum Sófi sögulegra skáldsagna eða www.histo-couch.de. Á vefnum fylgir ritdómur um bókina sem er glimrandi fínn og lýkur á orðunum: „Þessi bók er glitrandi perla í hópi sögulegra skáldsagna.
Hrafninn er áhrifarík saga sem fjallar um Inúítastúlkuna Naaju og gerist í Grænlandi á 15. öld. Eftir að hafa verið hrakin úr þorpi sínu þarf Naaja að takast á við erfiðleika sem draga fram styrk hennar og sérstöðu sem gerir henni kleift að þola grimmasta mótlæti og lifa af.
Bókin hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2005.