Jakob Ejersbo

Hrá, hröð, óvægin, ögrandi og gríðarlega góð.

Anna Lilja Þórisdóttir gefur Útlaga eftir Jakob Ejersbo fjórar og hálfa stjörnu í Morgunblaðinu á laugardaginn og er hugfangin af sögunni. „Margir hafa velt því fyrir sér hvernig karlmanni um fertugt hafi tekist að setja sig svona vel inn í hugarheim unglingsstúlku,” segir hún þegar hún hefur rakið efni sögunnar. „Sjálfur sagði Ejersbo heitinn að Samantha væri byggð á vinkonu hans, sem hann kynntist í Tansaníu.

Annars hefði sagan allt eins getað verið um unglingsdreng. Eða ungling í allt annarri heimsálfu. Því þó að sögusviðið skipti vissulega máli, þá spyrja unglingar af báðum kynjum í öllum heimshornum sig sömu spurninga og Samantha gerir: Hver er ég? Hvar passa ég inn í?” Og Anna Lilja heldur áfram ítarlegri úttekt sinni á bókinn: „Kaflarnir eru stuttir og hnitmiðaðir, hér er vaðið beint áfram og ekkert dregið undan. Þessi frásagnaraðferð, sem hefur verið kölluð Dirty realism hentar efninu ákaflega vel.

Samantha segir söguna í fyrstu persónu. Svo virðist sem flestum í kringum hana sé ljóst að hún er á hraðri niðurleið, en enginn grípur inn í. Hún æðir áfram, lítur sjaldan til hliðar eða um öxl. Svakalegur töffari á yfirborðinu, en á bak við það leynist lítil og ringluð stelpa sem á enga ósk heitari en að einhverjum þyki vænt um sig. Hún hefur bara aldrei upplifað það og veit því ekki hvernig hún á að bera sig að til þess. Þetta hljómar sem margtuggin saga, en Ejersbo tekst að vinna þannig með klisjuna um barnið sem engum þykir vænt um að það er eins og enginn hafi skrifað um það áður.”

Og að lokum segir Anna Lilja: „Þetta er ekki notaleg lesning. Hrá, hröð, óvægin og ögrandi. En gríðarlega góð …”

INNskráning

Nýskráning