Þrír af höfundum Forlagsins fengu hver sína viðurkenninguna á þjóðhátíðardaginn sem allar voru verðskuldaðar.
Þorgrímur Þráinsson var útnefndur borgarlistamaður Reykjavíkur við hátíðlega athöfn í Höfða. Með því fá íslenskir unglingar loksins málsvara í borgarlistamanninum því auk þess að vera höfundur fjölda vinsælla barna- og unglingabóka hefur hann á undanförnum árum beitt sér í forvörnum og fræðslu til íslenskra unglinga í borginni og um allt land.
Á Akranesi var skáldkonan Sigurbjörg Þrastardóttir sæmd titlinum bæjarlistamaður við hátíðlega athöfn. Sigurbjörg er fædd og uppalin á Akranesi og hefur sterk tengsl við heimabæ sinn sem sér meðal annars stað í sumum ljóða hennar. Þá keppti Sigurbjörg fyrir Akranes í Útsvari og stóð sig með mikilli prýði.
Loks var Kristín Steinsdóttir rithöfundur og formaður Rithöfundasambands Íslands sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Hún hlaut orðuna fyrir framlag sitt til íslenskra bókmennta sem er orðið ærið. Kristín sendi frá sér sína fyrstu bók 1987 og setti strax mark sitt á íslenskar barnabókmenntir. Undanfarin ár hefur hún sent frá sér skáldsögur sem hlotið hafa margs konar viðurkenningar.
Forlagið óskar Þorgrími, Sigurbjörgu og Kristínu innilega til hamingju með viðurkenningarnar og vonar að þær hvetji þau til dáða við ritstörfin.