Við vekjum athygli á hljóðbókarútgáfu Nýja testamentisins þar sem valinkunnir lesarar flytja boðskap bókar bókanna. Hér á síðunni getur þú fundið hljóðdæmi af lestri sr. Sigurbjörns Einarssonar en með honum lesa einnig Guðrún Ásmundsdóttir, sr. Hjörtur Pálsson, hr. Karl Sigurbjörnsson, Þórunn Hjartardóttir, Ævar Kjartansson og sr. Örn Bárður Jónsson úr nýrri þýðingu Nýja testamentisins sem út kom árið 2007.
Í Biblíunni er að finna menningarlegan og siðferðislegan grunn Vesturlanda og því er mikill fengur að útgáfunni sem gerir enn fleirum kleift að kynnast guðspjöllum Matteusar, Markúsar, Lúkasar og Jóhannesar. Þá eru öll bréf Nýja testamentisins lesin, m.a. Rómverjabréfið, bréf Páls postula og Péturs, bréf Jóhannesar, bréf Jakobs og bréf Júdasar. Mjög hefur verið vandað til verka við vinnslu hljóðbókarinnar sem er í fallegum kassa.
Smelltu hér til að hlýða á lestur sr. Sigurbjörns Einarssonar á upphafi Lúkasarguðspjalls. Lestrinum má hlaða niður á tölvu með því að hægrismella á tengilinn og velja „Vista tengil“.