Allir stara á nýja strákinn þegar hann gengur inn í bekkinn í fyrsta sinn. En enginn með sömu augum og Íris Sól. Hún sér strax eitthvað alveg sérstakt við Tristan – og það er gagnkvæmt. Er hægt að trúa á ást við fyrstu sýn? Og er nokkuð að marka gamlar sögur um sorgleg og óumflýjanleg örlög?
Unglingabækur Ragnheiðar Gestsdóttur hafa notið mikilla vinsælda. Fyrir bókina 40 vikur hlaut hún Barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkur og Norrænu barnabókaverðlaunin fyrir ævintýrasöguna Sverðberann.
Hjartsláttur er virkilega spennandi saga um eldheita ást á afar dramatískum tímum í sögu þjóðarinnar. Frábær bók fyrir bæði stráka og stelpur.