HHhH eftir Lauren Binet vakti mikla athygli íslenskra lesenda þegar hún kom út snemma í vor og heldur þeim enn hugfangnum.
Bókin hefur setið í efstu sætum kiljulista Eymundsson allt frá því að hún kom út fáar bækur verið jafn sívinsælar það sem af er árinu. Síðast í dag birtist frábær dómur um bókina þar sem Valur Gunnarsson, gagnrýnandi DV, gefur henni fimm stjörnur:
„Sagnfræðingum seinni heimstyrjaldar er vandi búinn. Líklega eru þetta mest rannsökuðu sex ár mannkynssögunnar og síðustu eftirlifendur eru óðum að deyja. Með þeim fyrirvara að leifar Hitlers finnist í Argentínu virðist því fátt nýtt um atburðina að segja. En höfundur hér segir ekki aðeins sögu viðburðanna heldur líka sögu sögunnar. Ótal fræðirit, sögulegar skáldsögur og kvikmyndir hafa verið gerðar um morðið á Heydrich og Binet tekst á við þær brýtur upp frásögnina til að ræða aðrar útgáfur og hvaða honum þyki um þær. Með þessum hætti dregur hann lesandann ekki aðeins inn í frásögnina heldur inn í rannsóknina líka, maður flygist spenntur með að hverju hann kemst og eftir því sem hann sökkvir sér dýpra og dýrpa ofan í heimildirnar … HHhH er sagnfræði dulbúin sem skáldsaga, höfundur sprengir upp bæði form og tekur sér frelsi til að komast nær viðburðum en flestir sagnfræðingar geta. Og þó hlýtur maður að spyrja sig, er hægt að skrifa sögulegar skáldsögur um seinni heimsstyrjöldina eftir HHhH?“
Við hvetjum alla sem eiga eftir að kynna sér þetta magnaða verk til að grípa sér eintak!