Ný söguleg skáldsaga Laurents Binets, HHhH, var tekin fyrir í Kiljunni á dögunum og voru gagnrýnendur á einu máli um ágæti hennar.
Þau Kolbrún Bergþórsdóttir og Sigurður G. Valgeirsson voru sammála um að ótrúlegt væri að um frumraun höfundar væri að ræða, slík væri ástríðan og eljan sem lögð var í bókina. Eins voru þau sammála um að efniviðurinn væri í senn hrikalegur og magnaður en bókin segir frá Reinhard Heydrich sem Egill Helgason kallar „eitt af hreinræktuðustu illmennum sögunnar“, hvernig tveir andófsmenn í Prag reyndu að ráða hann af dögum og hræðilegum hefndum Þriðja ríkisins. Mikið hefur verið talað um óvenjulega frásagnaraðferð sem Binets beitir í bókinni en þar fá lesendur að fylgjast með honum kljást við form sögulegu skáldsögunnar og hvernig efnið og heimildasöfnunin hefur áhrif á hann persónulega sem Sigurður telur einn af helstu kostum bókarinnar: „…hann leikur við mann í gegnum efnið og segir jafnframt frá hræðilegum atburðum og miklum hetjuskap af gríðarlegri íþrótt.“
Kolbrún var einnig mjög jákvæð í garð bókarinnar og sagði meðal annars: „Það er sérstök upplifun að lesa þessa bók … Hann er tilfinningaríkur, lifir sig inn í efnið og ég held að allir lesendur geri það líka … Það eru mjög margir sem hafa áhuga á seinni heimstyrjöldinni og þeir verða að lesa þessa bók. Hún situr í manni … Þetta er algjörlega mögnuð bók. Við eigum eftir að fá margar þýddar bækur á árinu en þessi er ein af þeim bestu.“
HHhH situr nú í 2. sæti metsölulista Eymundsson og ef marka má dómana kemur hún til með að verma efstu sæti listan fram eftir vori.