Tæplega hundrað krakkar tóku þátt í getrauninni á Barnabókahátíð Forlagsins í Iðnó á laugardaginn var. Búið er að draga nöfn tíu heppinna krakka úr réttum svarseðlum og hafa forráðamenn þeirra verið látnir vita. Líf og fjör var á barnabókahátíðinni þar sem allar nýjar barnabækur Forlagsins voru kynntar með fjölbreyttum hætti. Myndir frá hátíðinni er hægt að sjá á facebook síðu Forlagsins.